Samskipti eru mér alltaf ofarlega í huga.
Hvernig temjum við okkur að hafa samskipti, sýnum við einlægan áhuga og hlustum við af einlægni?
Samskipti eru óumflýjanleg, þú ert alltaf í einhverjum samskiptum. Við börnin þín, maka, vini, starfsfólkið í búðinni eða samstarfsmenn.
Ég hef lagt mikið uppúr því að temja mér góð og jákvæð samskipti, ég hef lært margskonar aðferðir við samskipti og það er misjafnt í hvernig aðstæðum þú ert, hvaða samskiptaleið er best. En sýna einlægan áhuga á öðrum og hlusta á það sem aðrir hafa að segja er mjög mikilvægt. Stundum felst nefnilega meira í samræðunum heldur en bara orðin sem eru sögð. Þú kemst ekki að því hvað er „á milli línanna“ nema hlusta af einlægni.
Jákvæð og uppbyggileg samskipti smita út frá sér. Ef þú temur þér jákvæð samskipti, þá skilar það sér út í kosmósið og þú færð það margfalt tilbaka.
Sjaldan hefur verið meiri þörf fyrir jákvæð og uppbyggileg samskipti, eins og núna. Það er ástand, það eru að koma jól og þessi árstími er oft erfiður fyrir marga.
Við þekkjum það öll að þegar þú hittir einhvern sem er jákvæður og sýnir þér fulla tillitssemi, þá verðum við ósjálfrátt glöð og jákvæð.
Ef við temjum okkur jákvæð samskipti þá finnum við fyrir meiri gleði í lífinu og við verðum kraftmeiri og við miklu sáttari í eigin skinni.
Bara það að brosa, sýna umhyggju og hlýju eða bara að bjóða góðan daginn, getur skipt sköpum fyrir aðra, veitt þeim hlýju og aukna vellíðan.
Jákvæðnin, umhyggjan, gleðin og brosið smitar út frá sér og allt þetta hefur áhrif.
Hafðu áhrif, sýndu umhyggju og brostu
Ég lofa þér því að dagurinn þinn verður frábærari fyrir vikið.