Lífsreglurnar mínar
Eftir að ég byrjaði mína sjáfsvinnu og hóf upphafið að nýju og betra lífi, þá setti ég mér reglur. Þessar reglur hef ég alla daga síðan reynt að fylgja eftir bestu getu, það getur þó reynst þrautinni þyngri, en ég á oft samtal við sjálfa mig og rifja upp hvers vegna ég setti þessar reglur til að byrja með. Ég þurfti það til þess að auðvelda mér sjálfsvinnuna.
Ég var þjökuð af meðvirkni, vanlíðan og gerði það sem ég gat til að þóknast öðrum. Við það fékk ég mögulega hrós og fannst mér að ég hafi gert eitthvað gagn.
Á þessum tíma lifði ég ekki eftir neinum reglum, öðrum en að þóknast og gera fyrir aðra. Það var mín leið til þess að upplifa einhverja vellíðan, sem þó dugði skammt.
Það líður varla sá dagur sem ég þarf ekki að minna mig á þessar reglur og rifja upp hvers vegna ég ákvað að setja mér þær til að byrja með. Þær hafa breyst og þær hafa aukist með tímanum en ég endurskoða þær oft í takt við þann tíma sem er í gangi hverju sinni.
Þetta eru lífsreglurnar mínar:
1. Ég er í forgangi hjá mér
2. Hugsaðu fyrst um hvað þér finnst
3. Ekki gera eitthvað sem þú ert ekki 100% sátt við
4. Þú hefur val!
5. Segðu alltaf það sem þér finnst
6. Ekki sækjast eftir viðurkenningu annarra
7. Finndu það sem drífur þig áfram
8. Vertu viss um virði þitt
9. Sýndu alltaf þakklæti
10. Vertu alltaf heiðarleg, við þig og aðra
11. Þú getur ALLT sem þú vilt og ætlar þér