Sjálfsumhyggja á erfiðum tímum
Hugleiðing dagsins
Nú þegar Covid hefur skollið á okkur aftur og þá er mikilvægt að hugsa vel um okkur og reyna eftir bestu getu að halda í jákvæðnina.
- Hvað gerir þú fyrir sjálfa/n þig í þessum aðstæðum?
- Dettur þú í nækvæðni yfir fréttatímanum?
- Finnst þér aðstæðurnar vera vonlausar?
- Ertu þreytt/ur á þessu ástandi og nennir því ekki?
Hugurinn okkar er svo magnaður, hann hlustar alltaf á hugsanir þínar og fylgir þeim. Þess vegna er svo mikilvægt að fóðra hann vel með jákvæðum hugsunum.
Það er alltaf hægt að finna eitthvað jákvætt við allar aðstæður, ef maður bara vill það. Það getur að sjálfsögðu verið erfitt í neikvæðu umhverfi en máttur hugsana okkar er svo magnaður. Ef það er eitthvað neikvætt sem truflar þig í dag, prófaðu þá að finna allavega eitt jákvætt atriði sem hjálpar þér að eiga við slíkar aðstæður.
Við verðum að muna að eina manneskjan sem við getum breytt, erum við sjálf. Breyttu viðhorfi þínu og því hvernig þú bregst við, það er góð byrjun.
Lítið dæmi: að bregðast við neikvæðum einstaklingum með jákvæðni. Það hefur líka áhrif á þann neikvæða. Segja sér; „svona er hann/hún bara“, er erfið en góð leið til að takast á við neikvæðan einstakling.
Ef þú talar við sjálfa/n þig og segir þér jákvæð orð, finnur fyrir jákvæðum tilfinningum þá lærir hugurinn það og hann breytist.
Hér eru nokkrar aðferðir sem hægt er að nota til þess að þjálfa hugann í jákvæðni.
- Skrifa niður í bók (mjög áhrifarík aðferð)
o Fyrir hvað ert þú þakklát/ur í dag?
o Hvernig líður þér í dag?
o Hvaða tilfinningar upplifir þú núna?
o Hvað ætlar þú að gera fyrir þig í dag til að láta þér líða enn betur?
- Setjast niður í góðri og þægilegri líkamsstöðu, loka augunum og hugsa (hugleiða)
o Hugsa um það sem þú ert þakklát/ur fyrir
o Spyrja sjálfa/n þig um líðan þína
o Finna fyrir tilfinningunum sem eru hjá þér núna
o Ákveða með sjálfri/um þér, hvað ætlar þú að gera í dag fyrir þig sem lætur þér líða vel
- Horfa í spegil
o Segja þér 3 orð sem eru jákvæð um þig
o Segja þér oft að dagurinn verði mjög góður
o Finna 3 atriði sem þú ert þakklát/ur fyrir
o Ákveða með sjálfum/ri þér, hvað þú ætlar að gera í dag sem lætur þér líða vel
Okkur langar öllum að líða vel. Við erum flest stressuð yfir því að þurfa mögulega að fara í annað lockdown vegna Covid. Okkur finnst flestum þreytandi að geta ekki leyft okkur að gera það sem við erum vön að gera, vegna hertra aðgerða sóttvarnalæknis.
Þetta eru krefjandi aðstæður fyrir okkur flest og þess vegna er enn mikilvægara að hugsa vel um sjálfan sig og fóðra okkur með jákvæðni.
Ég vona að þið eigið góðan föstudag og frábæra verslunarmannahelgi í litlum og góðum hópi.
Munið að halda í hamingjuna, hlæjið – brosið – skálið – hugsið jákvætt og látið ykkur líða vel.
Sendi ykkur helling af jákvæðni, brosi og rafrænu knúsi